Þegar skammtímafjármögnun verður dýr langtímalausn
- sandra04270
- Feb 3
- 2 min read

Undanfarin misseri hafa rekstrarskilyrði íslenskra fyrirtækja breyst hratt. Hærri vextir, þrálát verðbólga og aukin skattheimta hafa sett þrýsting á afkomu, á sama tíma og áhrif tollahækkana og takmarkana í alþjóðaviðskiptum, ekki síst gagnvart Bandaríkjunum, eru farin að bitna á mörgum atvinnugreinum.
Við þessar aðstæður hafa mörg fyrirtæki neyðst til að draga saman seglin. Fjárfestingum er frestað eða hætt, kostnaður skorinn niður og í sumum tilfellum gripið til uppsagna. Fyrir önnur skapast alvarlegur lausafjárvandi, jafnvel þótt undirliggjandi rekstur sé í grunninn rekstrarhæfur.
Þegar bankinn segir nei – hvert er næsta skref?
Í kjölfar þessara aðstæðna hefur framboð á skammtímafjármögnun aukist verulega. Fyrirtæki sem fá neitun hjá viðskiptabankanum sínum leita annarra lausn og þá eru það helst kröfufjármögnun og eða önnur dýr skammtímalán sem bankar myndu ekki samþykkja.
Slíkar lausnir geta verið freistandi. Fjármagnið er aðgengilegt, ferlið hratt og kröfur lánveitanda minni. Hins vegar er kostnðurinn oftar en ekki gífurlegur og fáir sem reikna eða leggja mat á heildarkostnað við lántökuna.
Raunkostnaðurinn er oft vanmetinn
Vextir upp á 3–5% til 30 daga kunna að hljóma hóflegir við fyrstu sýn. Þegar þeir eru færðir yfir á vexti á ársgrundvöll jafngilda þeir hins vegar 36–60% vöxtum á ársgrundvelli. Það er kostnaður sem fá fyrirtæki geta borið til lengri tíma án þess að veikja reksturinn verulega.
Oft er skammtímafjármögnun tekin til að brúa tímabundinn lausafjárvanda. Vandinn er sá að lausnin verður gjarnan endurtekin – og Þá getur tímabundið úrræði þróast í varanlegt ástand sem étur upp framlegð, veikir sjóðstreymi og dregur úr lánshæfi fyrirtækisins.
Áhættan hækkar – og kostnaðurinn með
Allar fjármögnunarlausnir byggja á áhættumati. Því meiri áhætta sem lánveitandi metur, því hærri verða vextirnir. Þegar fyrirtæki fer í dýra skammtímafjármögnun sendir það jafnframt ákveðin skilaboð inn í sitt fjárhagslega umhverfi – til banka, birgja og annarra fjármögnunaraðila.
Í stað þess að styrkja stöðuna getur slíkt aukið líkur á frekari neitunum, verri kjörum og þrengra svigrúmi til framtíðar.
Hvað er hægt að gera?
Í mörgum tilfellum er lausnin ekki að sækja meira fjármagn, heldur að endurskoða reksturinn, lausafjárstýringu og fjármögnunaruppbyggingu í heild. Með markvissri rekstrargreiningu má oft finna leiðir til að bæta sjóðstreymi, losa bundið fjármagn eða endurfjármagna skuldir á hagstæðari kjörum.
Slík vinna styrkir jafnframt stöðu fyrirtækisins gagnvart bönkum og öðrum lánveitendum og skapar betri forsendur fyrir sjálfbærari fjármögnun til lengri tíma.
Hvernig við aðstoðum
Hjá Strata aðstoðum við fyrirtæki við:
rekstrargreiningu og greiningu á lausafé
endurfjármögnun og mat á fjármögnunarkostum
uppbyggingu lausafjárstýringar og sjóðstreymis
fræðslu til stjórnenda og eigenda um raunverulegan kostnað fjármögnunar og áhrif hans á rekstur
Við vinnum út frá því að styrkja heildarstöðu fyrirtækja, draga úr óþarfa áhættu og bæta samningsstöðu þeirra gagnvart bönkum og fjármögnunaraðilum.

.png)



Comments