top of page
Search

Sagði bankinn nei?


Þegar góð fyrirtæki fá neitun vegna veikrar framsetningar

Það er ekki óalgengt að fyrirtæki fái neikvætt svar við lánsumsókn, jafnvel þótt reksturinn sé í grunninn traustur. Slík niðurstaða vekur oft spurningar: Er bankinn einfaldlega ekki tilbúinn að lána? Eru aðstæður á markaði orðnar of erfiðar?


Í flestum mörgun tilfellum er skýringin einfaldari – og jafnframt leiðréttanleg. Neikvætt svar við lánsumsókn er yfirleitt niðurstaða áhættumats sem byggir á gögnum og framsetningu þeirra.


Bankinn er alltaf að meta áhættu

Allar lánveitingar banka byggja á kerfisbundnu mati á áhættu. Bankinn er ekki að meta hvort hugmyndin sé spennandi eða hvort fyrirtækið hafi metnað, heldur hvort hann geti með góðri vissu treyst því að lánið verði greitt til baka samkvæmt samningi.


Í grunninn horfir bankinn á þrjá meginþætti:

  1. Lánshæfi félagsins: Rekstrarsaga, afkoma, eigendahópur, stjórnarhættir og hvernig fyrirtækið er rekið í dag. Er um að ræða félag sem hefur sýnt stöðugleika og ábyrgð í rekstri?

  2. Greiðslugetu til framtíðar: Ekki aðeins núverandi staða, heldur sjóðstreymi næstu ára. Getur reksturinn staðið undir greiðslum af afborgunum og vöxtum – einnig ef forsendur breytast?

3. Tryggingar á bak við lánið: Veð, ábyrgðir eða aðrar tryggingar sem draga úr áhættu bankans

ef áföll verða í rekstri.


Þessir þrír þættir eru ekki metnir í sundur, heldur sem hluti af einni heildarmynd.


Framsetningin skiptir sköpum

Mörg fyrirtæki leggja mikla vinnu í tölur, rekstraryfirlit og spár – en síður í það hvernig gögnin eru sett fram og tengd saman. Þegar upplýsingar eru sundurlausar, forsendur óskýrar eða framtíðarsýn ekki nægilega rökstudd, verður áhættan óljós í augum bankans.


Góð lánsumsókn snýst því ekki aðeins um réttar tölur, heldur um að:

  • Útskýra af hverju fjármögnunar er þörf

  • Sýna hvernig hún styður við reksturinn

  • Draga upp trúverðuga mynd af framtíð fyrirtækisins.


Þegar þessa frásögn vantar, nær umsóknin ekki að endurspegla raunverulegan styrk rekstursins.

Þegar sterkur rekstur nær ekki til skila


Það sem við sjáum aftur og aftur í okkar ráðgjöf er að fyrirtæki eru rekstrarlega heilbrigð, með góða vöru eða þjónustu og raunhæfa framtíðarsýn. Þrátt fyrir það fá þau neikvætt svar, einfaldlega vegna þess að umsóknin nær ekki að svara þeim spurningum sem bankinn er að spyrja.


Í slíkum tilfellum er niðurstaðan ekki endilega endanleg. Með betri greiningu, skýrari framsetningu og markvissari undirbúningi er oft hægt að styrkja umsóknina verulega.


Hvernig við aðstoðum

Hjá Strata aðstoðum við fyrirtæki við að undirbúa lánsumsóknir út frá því hvernig bankar raunverulega taka ákvarðanir.


Við vinnum með:

  • Greiningu á lánshæfi og rekstrarstöðu

  • Raunhæfar sjóðstreymisspár og næmnigreiningar,

  • Verðmat trygginga og útreikninga á veðstöðu

  • Skýra framsetningu gagna sem tengir tölur og rekstrarsögu saman í heildstæða mynd.


Markmiðið er ekki aðeins að sækja um lán, heldur að gera áhættuna skiljanlega, mælanlega og stýranlega í augum bankans.


Markmiðið er einfalt:

að bankinn skilji fyrirtækið, treysti forsendunum og sjái lausnina – ekki vandamálið.


📩 Hafðu samband ef þú ert að huga að fjármögnun, endurfjármögnun eða vilt styrkja stöðu fyrirtækisins gagnvart bönkum og fjármögnunaraðilum.

 
 
 

Comments


bottom of page