
Námskeið: Praktík fyrir fólk í rekstri
Hagnýtt námskeið fyrir fjármálastjóra, stjórnendur og eigendur fyrirtækja sem vilja skýra yfirsýn yfir hvernig fjárhagslegar ákvarðanir í daglegum rekstri hafa áhrif á lausafé, afkomu og stöðu fyrirtækisins. Námskeiðið byggir á raunverulegum aðstæðum og veitir innsýn í hvernig nýta má fjármálin sem virkt stjórntæki í rekstri.
Praktískar upplýsingar
Kennarar /fyrirlesarar
Fyrirlesarar á námskeiðinu hafa allir mikla reynslu úr fjármálum og rekstri fyrirtækja. Aðrir gestafyrirlesarar eru Guðrún Íris Pálsdóttir bókari og eigandi Hvesta bókhaldsstofu og aðrir gestafyrirlesarar verða auglýstir síðar.
Námskeiðslýsing
Hagnýtt námskeið fyrir fjármálastjóra, stjórnendur og eigendur fyrirtækja sem vilja skýra yfirsýn yfir hvernig fjárhagslegar ákvarðanir í daglegum rekstri hafa áhrif á lausafé, afkomu og stöðu fyrirtækisins. Námskeiðið byggir á raunverulegum aðstæðum og veiti innsýn í hvernig nýta má fjármálin sem virkt stjórntæki í rekstri.
Námskeiðið byggir á þeirri nálgun að fjármál séu stjórntæki í rekstri, ekki eingöngu bókhald eða eftirfylgni. Áhersla er lögð á að skilja hvernig ákvarðanir um verðlagningu, rekstrargreiningu, kostnað og bókhald endurspeglast í sjóðstreymi, rekstrarniðurstöðu og heildarstöðu fyrirtækja. Fjallað er um hvernig betri yfirsýn og skýrari forsendur geta skipt sköpum fyrir árangur í rekstri.
Kennslan byggir á fyrirlestrum og vinnustofum frá fólki með víðamikla reynslu úr rekstri fyrirtækja. Námskeiðið er ekki fræðilegt í hefðbundnum skilningi heldur byggir á hagnýtri rekstrarþekkingu, umræðum og verkefnum. Þátttakendur vinna verkefni byggð á raunverulegum aðstæðum úr rekstri og fá þannig innsýn í hvernig fjárhagslegar ákvarðanir eru teknar og hvaða áhrif þær geta haft.
Markmið námskeiðsins:
-
Að styrkja fjárhagslega ákvarðanatöku stjórnenda og fjármálastjóra í litlum og meðalstórum fyrirtækjum
-
Að bæta lausafjárstýringu og fyrirsjáanleika í rekstri
-
Að tryggja að verðlagning, rekstrargreining, kostnaður og bókhald endurspegli raunverulegan rekstur
-
Að auka skilning á fjármögnun og samskiptum við lánveitendur
Staðsetning námskeiðs: Vinnustofa Kjarvals, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, en gæti breyst eftir fjölda þátttakenda.

Kennsluáætlun
Dagur 1
24.febrúar 2026
17.00-21.00
Hlé kl 18:00 - 18:10
Hlé kl 19:00-19:30
Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur.
Staðsetning: 5.hæð innra rými á Vinnustofu Kjarval
Grunnurinn: Hvernig verður árangur til?
Farið er í fjármál sem stjórntæki, ekki bókhaldssögu. Áhersla á hvernig verðlagning, samningar, tekjumódel og launakostnaður móta raunverulegan árangur, sjóðstreymi og ábyrgð eigenda og stjórnenda. Hvernig röng verðlagning eða skortur á yfirsýn getur gert annars „góðan rekstur“ óarðbæran.
Áhersluatriði:
-
Fjármálastjórnun vs. bókhald – ábyrgð, gögn og algeng mistök
-
Kostnaðarverð seldra vara / þjónustu
-
Laun, tímaskráningar og orlofsskuldbindingar nýtt sem verkfæri
-
Verðlagning, framlegð, tekjumódel og áskriftartekjur
Verkefni: Greining og endurskoðun á eigin tekjumódeli, verðlagningu og launakostnað
Dagur 2
3.mars 2026
16.00- 20.00
Hlé kl 17:00 - 17:10
Hlé kl 18:30-19:00
Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur.
Staðsetning: Fantasía á Vinnustofu Kjarval
Svigrúm eða aðhald: Að stýra peningum og tíma
Fjallað er um lausafjárstýringu þegar reksturinn er undir pressu og þegar vel gengur. Áhersla á hvernig eigendur og stjórnendur skapa fyrirsjáanleika, taka meðvitaðar ákvarðanir um fjárfestingar og nýta tíma og fjármagn til að styrkja reksturinn til lengri tíma.
Áhersluatriði:
-
Sjóðstreymi vs. hagnaður – hvar eru peningarnir og hvernig skapast yfirsýn
-
Forgangsröðun greiðslna, skattar og samningar – að vernda svigrúm
-
Greiðsluskilmálar
-
Fjármögnun og vöxtur: bankar, lán og sjóðstreymi sem styður ákvarðanir
Dagur 3
10. mars
17.00 -21.00
Hlé kl 18:00 - 18:10
Hlé kl 19:00-19:30
Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur.
Staðsetning: 5.hæð innra rými á Vinnustofu Kjarval
Árangur í rekstri: Áhættustýring, rekstrarflæði og bundið fé
Áhersla forsendur í rekstraráætlana, kostnaðarverð, framlegð og hvernig bundið fé í birgðum og eignum hefur áhrif á rekstur og afkomu. Mögulega áhættur í rekstri, tengd fjármálum.
Áhættustýring snýst ekki um skjöl heldur ákvarðanir. Farið er í skattalega áhættu, samninga, erlenda samstarfsaðila, tryggingar og hvernig fyrirtæki geta varið sig gegn óvæntum áföllum. Hvaða áhrif hafa breytingar í efnahagsreikningi á rekstur?
Áhersluatriði:
-
Skattar, VSK, seinar skilagreinar og rimlagjöld
-
Samningar, afbókanir, umframkostnaður og tryggingar
-
Erlendar greiðslur, gengissveiflur og gjaldþrot samstarfsaðila
-
Tryggingar í rekstri og í samningum
-
Birgðastýring, bundið fé, og áhrif efnahagsstærða á rekstrarreikning
-
Afskriftir, birgðir, fastafjármunir og yfirsýn.
Dagur 4
17. mars
17.00 -21.00
Hlé kl 18:00 - 18:10
Hlé kl 19:00-19:30
Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur.
Staðsetning: 4.hæð á
Vinnustofu Kjarval
Undirbúningur fyrir fjármögnun: Bankar, lán og rekstraráætlanir
Áhersla á hvernig fyrirtæki fara í fjármögnun og kynningar fyrir lánastofnanir. Hvernig stillum við upp sjóðstreymi, hvernig hugsa bankarnir? Hvað er "loan to value" og vaxtaþekja eða veð? Unnið er með rekstraráætlanir, sjóðstreymi, veð, lán og hvernig kynning sem virkar er sett upp.Hvernig lán standa til boða?
Áhersluatriði:
-
Rekstraráætlanir og forsendur
-
Sjóðstreymi
-
Lán, veð, yfirdráttur og hvað ber að forðast
-
Kynning sem "bankamenn" skilja
-
Hvaða veð og ábyrgðir er ég með í rekstrinum?
Dagur 5
21. mars
10.00 -13.00
Hádegisverður kl 11:30-12:00
Staðsetning: Fantasía
Vinnustofa Kjarval
Fjárfestar: Fyrirtækið skoðað með augum fjárfesta
Hvað hækkar verðmat, hvað dregur það niður og hvernig má undirbúa fyrirtæki fyrir vöxt, fjármögnun eða sölu.
Áhersluatriði:
-
Hvernig fjárfestar hugsa og meta fyrirtæki
-
Tekjumódel, stöugleiki, framlegð, teymi, vaxtatækifæri
-
Verðmat: margfaldarar, EBITDA, cash flow og framtíðarvirði
-
Hvað myndi hækka verðmatið - og af hverju?
-
Hvað gerir fyrirtæki eftirsóknarvert ?
Kynning frá fjárfesta, tengslamyndun og spjall.
.png)



