HVERJAR ERUM VIÐ?

STRATA Advisory, er ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í fjármálatengdri ráðgjöf til fagfjárfesta og fyrirtækja.

Ráðgjafi og eigandi
Sólveig R. Gunnarsdóttir
Sólveig er stofnandi og eigandi STRATA Advisory. Hún er með áratuga reynslu í fjármálageiranum og hefur starfað bæði á Íslandi og erlendis.
solveig [ hjá ] strataadvisory.is

Ráðgjafi
Sandra S. Stefánsdóttir
Sandra er ráðgjafi hjá STRATA Advisory en hún er með víðtæka reynslu úr fjármála- og atvinnulífinu m.a. úr útlánum til fyrirtækja.
info [ hjá ] strataadvisory.is

Markaðs- og sölustjóri
Sigríður Inga Svarfdal
Sigríður Inga er markaðs- og sölustjóri hjá STRATA Advisory en hún er með víðtæka reynslu úr sölu- og markaðsmálum bæði hérlendis og erlendis.
sigga [ hjá ] strataadvisory.is

Ráðgjafi
Magdalena Torfadóttir
Magdalena er ráðgjafi hjá STRATA Advisory en hún er með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og starfaði lengst af í viðskiptablaðamennsku.
magdalena [ hjá ] strataadvisory.is


Sólveig R. Gunnarsdóttir, ráðgjafi
Menntuð með BSc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og með stjórnendagráðuna MBA frá Hult International Business School í San Francisco. Löggiltur verðbréfamiðlari og hefur setið námskeiðið Ábyrgð og Árangur stjórnarmanna í Opna Háskólanum í Reykjavík.
Ráðgjafi með áratuga reynslu í fjármálageiranum og starfað bæði hérlendis og erlendis. Hef starfað þvert á svið bankakerfisins og beggja vegna borðsins, í fjárfestingum, sjóðastýringu, fjárstýringu, fjármögnun og áhættustýringu, innan og utan banka.
Hefur náð miklum árangri fyrir þau félög sem hún hefur starfað fyrir hvort sem er í ávöxtun, stefnumótun, kaup/sölu eigna, fjármögnun fyrirtækja, kaup/sölu fyrirtækja, hækkun lánshæfiseinkunnar, rekstrarráðgjöf, hlutafjáraukningar, verðmatsvinnu, verkferlavinnu og fleiru.
Í tenglum við MBA námið vann hún að ráðgjafaverkefni fyrir NESTLE í Shanghai Kína og Autodesk í San Francisco í USA.
Stjórnarformaður Disact.
Situr í stjórn Eddu í Kópavogi.
Sat í stjórn Ölgerðarinnar.
Sat í stjórn KEA hótela.
Fv. formaður stjórnar FKA Framtíðar.


Sandra Sif Stefánsdóttir, ráðgjafi
Sandra er með BA-gráðu í hagfræði með aukagrein í stjórnun og stefnumótun og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig sótt stjórnendanámskeið og fengið þjálfun í leiðtogahæfni og samskiptum.
Sandra er ráðgjafi hjá Strata ráðgjöf en hún er með víðtæka reynslu úr fjármála- og atvinnulífinu. Hún starfaði í bankageiranum í yfir áratug, bæði í þjónustu, ráðgjöf og sérfræðistörfum, þar sem hún kom að fjármálum fyrirtækja í byggingageiranum, fjármögnun, áhættumati greiningu og stefnumótun.
Hún hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir, m.a. í rekstrarráðgjöf, fjármögnunar- og fjárfestingagreiningum auk undirbúnings og uppsetningar kynninga fyrir fjárfesta og fjármögnunaraðila.
Hún hefur einnig unnið að verkefnum og greiningum tengdum fasteignaþróun, fjárfestingum og markaðsmati þar sem hún hefur sýnt fram á sterka greiningarhæfni samhliða skýrri miðlun og hagnýtri ráðgjöf.
Sandra starfar einnig sem framkvæmdastjóri Disact ehf og er formaður stjórnar FKA Framtíðar.
.jpg)

Sigríður Inga Svarfdal, markaðs- og sölustjóri
Menntuð í markaðsmálum og almannatengslum frá Opna Háskólanum í Reykjavík og menntuð með grafíska miðlun og prenttækni frá Tækniskólanum.
Sigríður Inga er menntuð í markaðsmálum og almannatengslum frá Opna Háskólanum í Reykjavík og í grafískri miðlun og prenttækni frá Tækniskólanum. Hún hefur sterkan bakgrunn í markaðssetningu, miðlun, sölu og sjónrænni framsetningu.
Sigríður Inga er ráðgjafi með víðtæka reynslu af markaðsmálum, almannatengslum, sölu og vörumerkjauppbyggingu. Hún hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum tengdum kynningarmálum, sölu, samfélagsmiðlum, viðburðum, markaðsefni og samskiptum við viðskiptavini og hagaðila.
Hún hefur mikla þekkingu á því hvað skilar árangri í sölu- og markaðsmálum, bæði út frá stefnumótun, framkvæmd og greiningu. Hún hefur góðan skilning á neytendahegðun, markhópum, stafrænum bakenda, gagnagreiningum og árangursmælingum og því hvernig gögn og innsýn geta nýst til að bæta árangur í markaðsstarfi.
Sigríður hefur sérstakan styrkleika í að móta skýr skilaboð, byggja upp traust og auka sýnileika fyrirtækja á markaði. Hún sameinar skapandi hugsun, góða tilfinningu fyrir fólki og markhópum og hagnýta nálgun sem styður við árangur.
Sigríður er jákvæð, liðleg í samskiptum og lausnamiðuð. Hún fellur vel inn í STRATA teymið þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, traust og árangur fyrir viðskiptavini.
Sigríður sat í stjórn FKA Framtíðar og Sýnileikanefnd FKA.


Magdalena Anna Torfadóttir, ráðgjafi
Magdalena er með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Magdalena er ráðgjafi hjá STRATA Advisory og hefur víðtæka reynslu af fjármálum, greiningu og miðlun. Hún starfaði við viðskiptafjölmiðlun í tæpan áratug, meðal annars sem viðskiptablaðamaður á Morgunblaðinu og aðstoðarritstjóri Markaðarins, viðskiptarits Fréttablaðsins. Síðar starfaði hún hjá Stefni við greiningu, sölu og samskipti.
Hún er stofnandi og umsjónarmaður Fjármálakastsins, þar sem hún hefur um árabil fjallað um fjármál, rekstur fyrirtækja, fjárfestingar og þróun efnahagslífsins. Sú reynsla hefur veitt henni víðtæka innsýn í íslenskt atvinnulíf og sterkt tengslanet meðal stjórnenda, frumkvöðla og sérfræðinga á fjármálamarkaði.
Magdalena hefur jafnframt reynslu af fjármálastjórn og rekstri fyrirtækja og hefur gegnt formennsku í Ungum fjárfestum. Hún býr yfir sterkri greiningarhæfni og leggur áherslu á að setja flókin fjárhagsleg og rekstrarleg viðfangsefni fram með skýrum og aðgengilegum hætti.

.png)