top of page

Námskeið: Praktík fyrir fólk í rekstri

Hagnýtt námskeið fyrir fjármálastjóra, stjórnendur og eigendur fyrirtækja sem vilja skýra yfirsýn yfir hvernig fjárhagslegar ákvarðanir í daglegum rekstri hafa áhrif á lausafé, afkomu og stöðu fyrirtækisins. Námskeiðið byggir á raunverulegum aðstæðum og veitir innsýn í hvernig nýta má fjármálin sem virkt stjórntæki í rekstri.

Þetta eru ekki 20 klst þar sem þú situr aðeins og hlustar. 
Þetta eru 20 klukkustundir sem þú fjárfestir í sjálfum þér og framtíð fyrirtækisins!

Praktískar upplýsingar

Fyrir hvern?

  • Fjármálastjóra og stjórnendur með rekstrarábyrgð

  • Eigendur í virkum rekstri

  • Fyrirtæki í vexti, breytingum eða undirbúningi fjármögnunar, vilja skapa verðmætara fyrirtæki og taka félagið á næsta stig. ​

​

​

​

Vissir þú? 

  • Námskeiðsgjöld eru niðurgreidd af mörgum stéttarfélögum og mörg fyrirtæki eiga líka rétt á að sækja um styrki í gegnum Áttina. Námskeiðin okkar uppfylla öll skilyrði til niðurgreiðslu.​

​

​

​

Verð og lengd

  • Námskeiðið hefst
    23. febrúar 2027 - skráning er hafin

  • 4 vikur, samtals 20 klst
    (4 kvöld og 1 laugardagsmorgun)

  • 10–20 þátttakendur

  • Kaffiveitingar öll fjögur þriðjudagskvöldin, hádegisverður á lokadeginum

  • Litlir hópar og svigrúm fyrir spurningar

  • Engar upptökur og trúnaður innan hópsins

  • Notanlegt umhverfi á Vinnustofu Kjarval

  • Verð: 279.000 kr

Innifalið

  • Beinn aðgangur að og lærdómur frá reyndum sérfræðingum með ólíkan bakgrunn.

  • Innsýn inn í hvernig fjárfestar skoða og meta fyrirtæki

  • Skýrari mynd af því hvar fjárfestinartækifærin liggja

  • Sterkari forsendur fyrir samtöl við banka, lánveitendur og fjárfesta

  • Heildstæða yfirsýn um stöðu rekstrarins og skýrari næstu skref til að gera fyrirtækið arðbærara, fjármögnunarhæfara og verðmætara. 

Kennarar /fyrirlesarar

Fyrirlesarar á námskeiðinu hafa allir mikla reynslu úr fjármálum og rekstri fyrirtækja. 

Solveig_portrait-2_edited.jpg

Sólveig R Gunnarsdóttir

Eigandi STRATA Advisory

​

​

IMG_00211.png

Sandra Sif Stefánsdóttir

Ráðgjafi hjá STRATA Advisory, fjármálastjóri hjá Alfreð og STOKKUR Stoftware

Gudmundur.jpg

Guðmundur Sigþórsson

Fjárfestir, fjármála- og rekstrarráðgjafi

​

TinaPaic_edited.jpg

Tina Paic

Senior Manager hjá KPMG Law

​

​

images_edited.jpg

Hjördís Ýr Ólafsdóttir

Löggildur endurskoðandi og partner hjá KPMG

 

image001 (3)_edited.jpg

Baldur Snorrason

Forstöðumaður eignastýringar hjá Festa Lífeyrissjóður

​

Námskeiðslýsing

Hagnýtt námskeið fyrir fjármálastjóra, stjórnendur og eigendur fyrirtækja sem vilja skýra yfirsýn yfir hvernig fjárhagslegar ákvarðanir í daglegum rekstri hafa áhrif á lausafé, afkomu og stöðu fyrirtækisins. Námskeiðið byggir á raunverulegum aðstæðum og veiti innsýn í hvernig nýta má fjármálin sem virkt stjórntæki í rekstri.

​​

Námskeiðið byggir á þeirri nálgun að fjármál séu stjórntæki í rekstri, ekki eingöngu bókhald eða eftirfylgni. Áhersla er lögð á að skilja hvernig ákvarðanir um verðlagningu, rekstrargreiningu, kostnað og bókhald endurspeglast í sjóðstreymi, rekstrarniðurstöðu og heildarstöðu fyrirtækja. Fjallað er um hvernig betri yfirsýn og skýrari forsendur geta skipt sköpum fyrir árangur í rekstri.

​​

Kennslan byggir á fyrirlestrum og vinnustofum frá fólki með víðamikla reynslu úr rekstri fyrirtækja. Námskeiðið er ekki fræðilegt í hefðbundnum skilningi heldur byggir á hagnýtri rekstrarþekkingu, umræðum og verkefnum. Þátttakendur vinna verkefni byggð á raunverulegum aðstæðum úr rekstri og fá þannig innsýn í hvernig fjárhagslegar ákvarðanir eru teknar og hvaða áhrif þær geta haft.​​​​

​

Markmið námskeiðsins:

  • Að styrkja fjárhagslega ákvarðanatöku stjórnenda og fjármálastjóra í litlum og meðalstórum fyrirtækjum

  • Að bæta lausafjárstýringu og fyrirsjáanleika í rekstri

  • Að tryggja að verðlagning, rekstrargreining, kostnaður og bókhald endurspegli raunverulegan rekstur

  • Að auka skilning á fjármögnun og samskiptum við lánveitendur

​

Staðsetning námskeiðs: Vinnustofa Kjarvals, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, í notanlegu umhverfi. 

strata_sv_radgjof.png

Kennsluáætlun
(Athugið að kennsluáætlun getur tekið breytingum þegar nær dregur)

Dagur 1

23. febrúar 2027

17.00- 21.00

​​

Hlé kl 18:00 - 18:10

Hlé kl 19:00-19:30

​

Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur. 

​

Staðsetning: 5.hæð innra rými á ​Vinnustofu Kjarval

​

Fyrirlesarar: 

Sólveig R Gunnarsdóttir

Sandra Sif Stefánsdóttir

Tina Paic
Hjördís Ýr Ólafsdóttir

Grunnurinn: Hvernig verður árangur til? 

Farið er í fjármál sem stjórntæki, ekki bókhaldssögu. Áhersla á hvernig kostnaður, framlegð, bundið fé og skipulag móta raunverulegan árangur og sjóðstreymi.

Hvernig lestu ársreikning, og auka skilning á hvernig ársreikningur getur verið í tapi og eða hagnaði en þó er "ekkert" eða jafnvel "nóg" inn á reikningnum?

​

Farið er yfir forsendur rekstraráætlana, kostnaðarverð og framlegð, og hvernig bundið fé í birgðum og eða fastafjármunum hefur bein áhrif á rekstur og afkomu. Hverjar eru helstu áhættur í rekstri ? Hvernig getur góður rekstur orðið óarðbær? Hvernig tengist daglur rekstur niðurstöðunni í ársreikningnum? Hvernig röng verðlagning eða skortur á yfirsýn getur gert annars „góðan rekstur“ óarðbæran.

​

Áhersluatriði:

  • Fjármálastjórnun vs. bókhald – ábyrgð, gögn og algeng mistök

    • Rekstrarskýrslur, hvað segja þær í raun? ​

  • Kostnaðarverð seldra vara / þjónustu og fastur kostnaður

  • Ábyrgð og algeng mistök í bókhaldi

  • Birgðastýring, bundið fé og áhrif efnahagsstærða á rekstrarreikning. 

  • Afskriftir, birgðir, fastafjármunir (eignaskrá) og yfirsýn. 

  • Frá bókhaldskerfum yfir í ársreikning - hvað gerðist ? 

  • Skattar, VSK, seinar skilagreina og rimlagjöld

  • Laun, tímaskráningar og orlofsskuldbindingar nýtt sem verkfæri

    • Verktakar vs launþegar​

    • Vaktir, tímaskráningar og fleira

    • Orlof, orlofsskuldbindingar, veikindaréttur og fleira

​

Verkefni: Hvað kostar bundið fé í mínum rekstri? Hvar liggur aðal fjárhagslega áhættan í mínum rekstri ? 

Dagur 2

2. mars 2027

17.00- 21.00

​

Hlé kl 18:00 - 18:10

Hlé kl 19:00-19:30

​

Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur. 

​

Staðsetning: 5.hæð innra rýmið á Vinnustofu Kjarval

​

Fyrirlesarar: 

Sólveig R Gunnarsdóttir

Sandra Sif Stefánsdóttir

Svigrúm eða aðhald: Að stýra peningum og tíma

Fjallað er um lausafjárstýringu þegar reksturinn er undir pressu og þegar vel gengur. Áhersla á hvernig eigendur og stjórnendur skapa fyrirsjáanleika, taka meðvitaðar ákvarðanir um fjárfestingar og nýta tíma og fjármagn til að styrkja reksturinn til lengri tíma. Áhættustýring snýst ekki um skjöl heldur ákvarðanir. Farið er í skattalega áhættu, samninga, erlenda samstarfsaðila, tryggingar og hvernig fyrirtæki geta varið sig gegn óvæntum áföllum. Áhersla á hvernig verðlagning, samningar, tekjumódel og launakostnaður móta raunverulegan árangur, sjóðstreymi og ábyrgð eigenda og stjórnenda. Hvernig röng verðlagning eða skortur á yfirsýn getur gert annars „góðan rekstur“ óarðbæran.

​

Áhersluatriði:

  • Sjóðstreymi vs. hagnaður – hvar eru peningarnir og hvernig skapast yfirsýn

  • Forgangsröðun greiðslna, skattar og samningar – að vernda svigrúm

  • Greiðsluskilmálar

  • Verðlagning, framlegð, tekjumódel og áskriftartekjur

  • Tryggingar í rekstri og í samningum

  • Rekstrarspálíkön

  • Erlendar greiðslur, gengissveiflur, og gjaldþrot samstarfsaðila

  • Samningar, afbókanir, umframkostnaður og tryggingar. 

  • Fjárfestingar, vextir og ávöxtun í félögum

Dagur 3

9. mars 2027

17.00 -21.00

​

Hlé kl 18:00 - 18:10

Hlé kl 19:00-19:30

​

Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur. 

​

Staðsetning: 5.hæð innra rými á ​Vinnustofu Kjarval

​

Fyrirlesarar: 

Guðmundur Sigþórsson

Sólveig R Gunnarsdóttir

Sandra Sif Stefánsdóttir

​

​

​

​

​

​

Þegar þrengir að: Stýring í lausafjárþurrð

Hvað gerum við þegar lausafjárstaða versnar og hefðbundin fjármögnun er ekki í boði? Þessi hluti fjallar um raunverulegar aðstæður þar sem svigrúm minnkar, þrýstingur eykst og ákvarðanir þurfa að vera bæði hraðar og yfirvegaðar. Áhersla er á hvernig má stýra rekstri í gegnum tímabundna erfiðleika án þess að veikja fyrirtækið til lengri tíma. Samband við birgja og hagsmunaaðila fyrirtæksins. 

​

Farið er yfir hvaða ákvarðanir skipta raunverulega máli, hvernig forgangsraða skal verkefnum og greiðslum, hvar má finna svigrúm innan rekstrarins og hvernig samningatækni og skýr forgangsröðun geta skipt sköpum. Það er auðvelt að stýra rekstri þegar gengur vel, en hvernig koma á rekstri og fyrirtækjum upp úr skotgröfunum er kúnst sem fáir kunna. 

​

Áhersluatriði:​

  • Hvaða leiðir má fara þegar félög lenda í greiðsluerfiðleikum og lausafjárþurrð ef lántaka eða önnur fjármögnun er ekki í boði?

  • Hvernig stýrum við rekstri í gegnum tímabundna erfiðleika án þess að veikja fyrirtækið til lengri tíma?

  • Hvaða ákvarðanir skipta raunverulega máli þegar þrýstingur eykst og svigrúm minnkar?

  • Samningatækni við birgja, lánveitendur og aðra

  • Samningar við lífeyrissjóða, skattinn og aðra viðskiptavini og birgja

Dagur 4

16. mars 2027
17.00 -21.00

​

Hlé kl 18:00 - 18:10

Hlé kl 19:00-19:30

​

Léttar kaffiveitingar en ekki kvöldmatur. 

​

Staðsetning: 5.hæð á
Vinnustofu Kjarval

​

Fyrirlesarar: 

Sólveig R Gunnarsdóttir

Sandra Sif Stefánsdóttir

Undirbúningur fyrir fjármögnun: Bankar, lán og rekstraráætlanir

Áhersla á hvernig fyrirtæki fara í fjármögnun og kynningar fyrir lánastofnanir. Hvernig stillum við upp sjóðstreymi, hvernig hugsa bankarnir? Hvað er "loan to value" og vaxtaþekja eða veð? Unnið er með rekstraráætlanir, sjóðstreymi, veð, lán og hvernig kynning sem virkar er sett upp.Hvernig lán standa til boða? 

​

Áhersluatriði:

  • Rekstraráætlanir og forsendur

  • Sjóðstreymi

  • Lán, veð, yfirdráttur og hvað ber að forðast

  • Kynning sem "bankamenn" skilja

  • Hvaða veð og ábyrgðir er ég með í rekstrinum? 

Dagur 5

20. mars 2027
10.00 -14.00

​

Hádegisverður kl 11:30-12:00

​

Staðsetning: Fantasía
Vinnustofa Kjarval

​

Fyrirlesarar: 

Sólveig R Gunnarsdóttir

Baldur Snorrasson

​

Pallborð: 

Gestir auglýstir síðar

Fjárfestar: Fyrirtækið skoðað með augum fjárfesta

Hvað hækkar verðmat, hvað dregur það niður og hvernig má undirbúa fyrirtæki fyrir vöxt, fjármögnun eða sölu.

​

Áhersluatriði:

  • Hvernig fjárfestar hugsa og meta fyrirtæki

  • Tekjumódel, stöugleiki, framlegð, teymi, vaxtatækifæri

  • Verðmat: margfaldarar, EBITDA, cash flow og framtíðarvirði

  • Hvað myndi hækka verðmatið - og af hverju? 

  • Hvað gerir fyrirtæki eftirsóknarvert ? 

​

Kynning frá fjárfesta, tengslamyndun og spjall.

Vissir þú?

Námskeiðsgjöld eru niðurgreidd af mörgum stéttarfélögum og mörg fyrirtæki eiga líka rétt á að sækja um styrk fyrir starfsfólk í gegnum Áttina. Námskeiðin okkar uppfylla öll skilyrði til niðurgreiðslu.

bottom of page