Breyta um nafn samhliða stækkun
- Sólveig R Gunnarsdóttir
- Jan 9
- 2 min read
Sólveig Ráðgjöf ehf. starfar nú undir nýju nafni, Strata Advisory. Nafnbreytingin endurspeglar skýra stefnu um stækkun og aukna áherslu á sérhæfða fjármála- og fyrirtækjaráðgjöf, með traustan fjármálagrunn að leiðarljósi.

Mörg fyrirtæki standa frammi fyrir flóknum ákvörðunum um fjármögnun, eigið fé, arðsemi og rekstur. Þar sjáum við sífellt meiri þörf fyrir öflugan og sveigjanlegan fjármálaráðgjafa, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma.
„Sterkur fjármálagrunnur er forsenda góðra ákvarðana. Hlutverk okkar er að hjálpa fyrirtækjum að byggja hann upp og nýta hann til markviss og sjálfbærs vaxtar,“ segir Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Strata Ráðgjafar.
Til liðs við félagið hefur gengið Sandra Sif Stefánsdóttir, með um tíu ára reynslu af fasteigna- og fyrirtækjaráðgjöf innan Arion banka, sem styrkir enn frekar ráðgjöf félagsins á sviði fjármögnunar, greiningar og framkvæmdar.
Samhliða breytingunum höfum við flutt skrifstofu okkar í hjarta Reykjavíkur, í hringiðu viðskiptalífsins, og hlökkum til næsta vaxtarskeiðs. Ef þú stendur frammi fyrir mikilvægum ákvörðunum um fjármögnun, kaup eða sölu eigna, eða þarft stuðning í rekstrarráðgjöf, er þér velkomið að slá á þráðinn, kíkja í kaffi eða kynna þér starfsemina á www.strataradgjof.is og senda okkur tölvupóst.
Viðskiptablaðið fjallaði um breytingarnar hér: https://vb.is/frettir/breyta-um-nafn-samhlida-staekkun/
Fréttin á ensku:
Sólveig Ráðgjöf ehf. now operates under a new name: Strata Advisory. The rebrand reflects a clear strategy for growth and an increased focus on specialised financial and corporate advisory, built on a strong financial foundation.
Many companies today face complex decisions around financing, capital structure, profitability and operational performance. We see growing demand for flexible, senior-level financial advisory support, both for specific projects and longer-term partnerships.
“A strong financial foundation is essential for sound decision-making. Our role is to help companies build that foundation and use it to drive focused and sustainable growth,” says Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir, Managing Director of Strata Advisory.
We are also pleased to welcome Sandra Sif Stefánsdóttir to the team. With close to ten years of experience from corporate and real estate advisory at Arion Bank, she further strengthens Strata’s capabilities in financing, analysis and execution.
Alongside the rebrand, we have moved our office to the heart of Reykjavík’s business district and look forward to the next phase of growth. If you are navigating key decisions around financing, asset acquisitions or disposals, or require operational or financial advisory support, we invite you to connect or send us an email.
Viðskiptablaðið pubished an article that can be viewed here:

.png)



Comments