Er fyrirtækið þitt verðmætara í dag en fyrir ári síðan ?
- Sólveig R Gunnarsdóttir
- Aug 11
- 2 min read
Margir eigendur mæla árangur sinn í veltu.
Margir fjölmiðlar og aðrir fylgjast með hagnaði.
En furðu fáir spyrja sig mikilvægustu spurninguna:
Er fyrirtækið mitt í raun orðið verðmætara?
Er hlutfall hagnaðar af veltu að skila hluthöfum félagsins ávöxtun og er það áhættunnar virði ?
Því þetta tvennt fer ekki alltaf saman.
Þú getur tvöfaldað veltuna og samt aukið áhættuna.
Þú getur aukið hagnaðinn og samt gert fyrirtækið háðara sjálfum þér.
Og þú getur lokað stórum samningi án þess að byggja upp eitt einasta langtímasamband.
Raunveruleg verðmæti verða sjaldnast til í einni sölu.
Þau verða til í trausti.
Trausti við viðskiptavini sem velja að koma aftur.
Trausti við starfsfólk sem velur að vera áfram.
Trausti við birgja sem standa með þér þegar á reynir.
Trausti við bankann sem þekkir fyrirtækið þitt.
Trausti við lögmenn, endurskoðendur, tryggingafélög og aðra ráðgjafa sem skilja reksturinn þinn og geta brugðist hratt við þegar á þarf að halda.
Þetta eru sambönd sem byggjast yfir mörg ár.
Ekki á einum fundi.
Ekki í einni sölu.
Ekki með lægsta verðinu.
Við tölum mikið um áskriftartekjur eða endurkomu viðskipti (recurring revenue).
En recurring revenue er í raun afleiðing.
Afleiðing þess að viðskiptavinir treysta þér.
Afleiðing þess að þú skapar raunverulegt virði.
Afleiðing þess að fólk vill eiga áfram viðskipti við þig.
Það sama á við um orðspor.
Orðspor er ekki keypt.
Það er áunnið.
Í hverju samtali.
Í hverri ákvörðun.
Í hverju samstarfi.
Kannski ættum við því að hætta að spyrja:
„Hvernig sel ég meira?“
Og spyrja frekar:
„Hvernig byggi ég fyrirtæki sem fólk vill eiga viðskipti við, vinna hjá og fjárfesta í, aftur og aftur?“
Þar byrja raunveruleg verðmæti. Þar sem við sköpum virði fyrir viðskiptavini, hagaðila og hluthafa.
Leyfðu okkur hjá STRATA Advisory að styðja við þitt fyrirtæki í að skapa verðmæti til framtíðar.


.png)



Comments