top of page
Search

Við vinnum með fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.

Við fáum oft þessa spurningu: „Eruð þið ekki bara að vinna með litlum fyrirtækjum?"

Svarið er: "nei, alls ekki!"


Hjá STRATA Advisory vinnum við með fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Viðskiptavinir okkar eru allt frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum, upp í stór félög, félög skráð á markað, bæði íslensk, alþjóðleg fyrirtæki. Við störfum einnig með fagfjárfestum sem leita til okkar vegna sérhæfðrar þekkingar og reynslu.


Dæmi um viðskiptavini STRATA Advisory (ekki tæmandi listi).
Dæmi um viðskiptavini STRATA Advisory (ekki tæmandi listi).

Ef þú hefur einhvern tíma hugsað „ég er ekki með nógu stóran rekstur til að leita til ráðgjafa" þá er það rangtúlkun. Verkefnin okkar eru jafn fjölbreytt og fyrirtækin sem við vinnum með, hvort sem um er að ræða umfangsmikil langtímaverkefni eða tímabundna ráðgjöf á afmörkuðu sviði.


Dæmi um verkefni sem við tökum að okkur:


  • Rekstrargreining og hagræðing: til dæmis þegar fyrirtæki þarf að greina hvar tækifærin liggja til að lækka kostnað eða bæta arðsemi, eða hvar eru tækifæri til vaxtar. Eru til dæmis vaxtaverkir í rekstrinum?


  • Endurfjármögnun og fjárhagsleg endurskipulagning: bæði þegar til dæmis fyrirtæki eru mikið skuldsett og þurfa að endurfjármagna til að styrkja lausafjárstöðu sína og lækka vaxtakostnað eða fjármögnun fyrir vaxtatækifæri.


  • Gerð viðskiptaáætlana og fjárhagslegra spáa: hvort sem um er að ræða sprota- og eða nýsköpunarfyrirtæki sem þarf að sækja fjármagn eða rótgróið fyrirtæki sem er að skipuleggja næstu skref.


  • Ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja: til dæmis þegar eigendur íhuga sölu á sínu fyrirtæki eða vilja meta kauptækifæri.


  • Verðmat á fyrirtækjum og eignum: þegar þörf er á óháðu mati, hvort sem það er vegna viðskipta, fjármögnunar eða innri stefnumótunar.


  • Tímabundin fjármálastjórnun: þegar fyrirtæki þarf reyndan aðila til að stýra fjármálum á meðan verið er að ráða til lengri tíma eða á krefjandi tímabilum.


  • Stefnumótun og áætlanir til vaxta: þegar fyrirtæki vill taka næstu stór skref en þarf leiðsögn við að greina bestu tækifærin og leiðirnar.


Við veljum okkur verkefni, ekki eftir umfangi rekstrar heldur út frá því hvort styrkleikar okkar geti skapað raunverulegan árangur og langtíma virði. Við erum alltaf tilbúnar að taka spjallið, metum öll verkefni ítarlega og leggjum mat á hvort við séum réttu aðilarnir til að vinna þau áfram. Fyrir okkur skiptir mestu máli að samstarfið skili mælanlegum ávinningi og raunverulegum lausnum.


Þú útskýrir áskorunina og eða tækifærið, við metum hvort samstarfið okkar geti skapað árangur og aukið virði fyrir þinn rekstur.


Ertu með áskorun eða mögulegt vaxtatækifæri sem þú vilt ræða? Hafðu samband við okkur og við tökum spjallið áfram. Sendu okkur línu á info@strataadvisory.is


 
 
 

Comments


bottom of page